
Í þættinum í dag er gestur minn Skúli Björn Gunnarsson.
Skúli var forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í 25 ár og hefur átt stóran þátt í að móta staðinn sem menningar-, fræða- og ferðamannastað á Austurlandi. Í samtalinu förum við yfir upphafið, söguna í húsinu, fólkið í kringum verkefnið og hvað það þýðir að kveðja starf sem hefur verið svo stór hluti af lífinu.
Við ræðum meðal annars:
– hvernig Skriðuklaustur var byggt upp sem menningarstaður
– arfleifð Gunnars Gunnarssonar og hlutverk Gunnarsstofnunar
– fornleifauppgröftinn og miðaldaklaustrið
– ferðaþjónustu, heimamenn og menningu á Austurlandi
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Version: 20241125
No comments yet. Be the first to say something!