Mjólkurhúsið
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Episodes

Friday Feb 06, 2026
#0 - Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka
Friday Feb 06, 2026
Friday Feb 06, 2026
Þessi þáttur er inngangur að Mjólkurhúsinu.Hér er ekki viðmælandi — heldur hugmyndin sjálf.
Elí Þór þáttastjórnandi fer yfir hvað Mjólkurhúsið er, af hverju þessi þáttaröð varð til og hvers vegna áherslan er á ferlið, ekki bara útkomuna.
Þetta er hlaðvarp um samtöl á milli verka.Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.

Friday Feb 06, 2026
#1 - Þór Ragnarsson
Friday Feb 06, 2026
Friday Feb 06, 2026
Í þessum fyrsta viðtalsþætti Mjólkurhússins ræðir Elí Þór við Þór Ragnarsson.
Samtalið snýst um ferlið á bak við verkin, hvernig hugmyndir verða til og hvaða ákvarðanir móta leiðina áfram. Þór deilir reynslu sinni af því að vinna hlutina í rólegheitum, hlusta á innsæið og leyfa ferlinu að þróast frekar en að elta fyrirfram skilgreinda útkomu.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka. Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.

Friday Feb 06, 2026
#2 - Sigrún Steindórsdóttir
Friday Feb 06, 2026
Friday Feb 06, 2026
þessum þætti ræðir Elí Þór við Sigrúnu Steindórsdóttur, sem rekur fyrirtækið Rammalausnir Sigrúnar.
Sigrún segir frá því hvernig reksturinn byrjaði, hvernig hann hefur þróast og hvernig vegferðin hefur gengið í gegnum árin. Samtalið fer yfir ferðalagið frá því hún útskrifaðist í húsgagnasmíði árið 1993, lauk sveinsprófi árið 2009 og byggði upp eigið fyrirtæki skref fyrir skref.
Þetta er samtal um ferlið, þrautseigju og hvernig reynsla og tími móta bæði handverkið og reksturinn.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka.Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.

Friday Feb 06, 2026
#3 - Óskar Bjarnason
Friday Feb 06, 2026
Friday Feb 06, 2026
þessum þætti ræðir Elí Þór við Óskar Bjarnason, oftast kenndan við Bólholt.
Óskar segir frá því hvernig hann endaði á Egilsstöðum og hvernig verkefnið Bólholt varð til. Samtalið fer yfir upphafið, aðdragandann og þær ákvarðanir sem leiddu verkefnið áfram, ásamt því að Óskar segir frá því sem hann fæst við í dag.
Þetta er samtal um staðsetningu, vegferð og hvernig hugmyndir taka á sig mynd þegar maður festir rætur og leyfir hlutunum að þróast.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka.Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.

Friday Feb 13, 2026
#4 – Díana Mjöll
Friday Feb 13, 2026
Friday Feb 13, 2026
þessum þætti ræðir Elí Þór við Díönu Mjöll, framkvæmdarstjóra og eiganda Tanni Travel — rútufyrirtækis og ferðaskrifstofu.
Samtalið snýst um það að taka við fyrirtæki sem faðir hennar stofnaði og hvernig þau byggðu það upp áfram. Díana segir frá ábyrgðinni sem fylgir kynslóðaskiptum, breytingum í rekstri og því að móta sinn eigin sess innan fyrirtækis sem á sér langa sögu.
Þetta er samtal um fjölskyldurekstur, traust og hvernig vegferðin heldur áfram þegar keflið færist á milli kynslóða.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka.Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.

Friday Feb 20, 2026
#5 - Davíð Kristinsson
Friday Feb 20, 2026
Friday Feb 20, 2026
Þáttur #5 – Davíð Kristinsson
Í þessum þætti hittum við Davíð Kristinsson á Seyðisfirði og förum með honum aftur til Danmerkur, þar sem hann starfaði í næturlífinu og rak skemmtistaði í allt öðrum takti en flestir þekkja.
Við ræðum hvernig það var að lifa og vinna í umhverfi sem krafðist hraða, ákvarðana og seiglu — og hvernig það var að snúa aftur heim til Íslands eftir þann kafla. Hvað breytist þegar tempóið hægist? Hvernig ber maður saman tvö samfélög sem virka á ólíkan hátt? Og hvernig endar maður á Seyðisfirði eftir svona ferðalag?
Þetta er samtal um heimkomu, umbreytingu og það að finna sinn stað — ekki bara landfræðilega, heldur í lífinu sjálfu.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið á bak við verkin — allt sem gerist á milli.

Friday Feb 27, 2026
#6 - Elín Káradóttir
Friday Feb 27, 2026
Friday Feb 27, 2026
Í þætti #6 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Elínu Káradóttur og ræðum leið sem byrjaði í Hróarstungu á Austurlandi, lá suður, slysast til Hveragerðis — og endaði í fasteignasölu sem hún síðar keypti og byggði upp.
Við tölum um samfélag og rætur, grunnskólagönguna og hvernig tilviljanir verða stundum að stefnu. Elín segir frá því hvernig hún fór að selja eignir á Austurlandi á meðan lífið var fyrir sunnan — og hvernig það endaði með því að hún flutti aftur austur þegar börnin vildu koma heim.
Nú er hún á nýjum stað í ferlinu. Á næstu misserum opnar hún Hjá Línu, fyrstu lúgusjoppuna á Egilsstöðum í langan tíma.
Þessi þáttur er lengri en vanalega, en samtalið fékk einfaldlega að taka þann tíma sem það þurfti.
Mjólkurhúsið er unnið í samstarfi við Austurfrétt.Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. 🎧

Friday Mar 06, 2026
#7 - Þorgeir Arason
Friday Mar 06, 2026
Friday Mar 06, 2026
Í þætti #7 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Þorgeiri Arasyni, sem og konan hans komu fyrst austur árið 2008 og settust að á Egilsstöðum. Hann vígðist til prestsstarfa árið 2009 og hefur síðan þá starfað í samfélaginu.
Við ræðum aðflutning, sterkt samfélag og hvernig það er að ala upp börn á Egilsstöðum. Við förum inn í þjónustustarf prestsins og spyrjum: Lýkur vinnudeginum nokkurn tímann í slíku hlutverki? Eru mörkin á milli vinnu og heimilis skýr?
Við tölum einnig um fjölskyldulíf í kringum þjónustustarf, verkefnin sem starfið kallar á og þau sérverkefni sem hann sinnir um þessar mundir. Og við veltum fyrir okkur hvort og hvenær einstaklingur getur orðið ómissandi.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.Unnið í samstarfi við Austurfrétt. 🎧





