Mjólkurhúsið
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Episodes

Friday Mar 13, 2026
#8 - Auður Vala
Friday Mar 13, 2026
Friday Mar 13, 2026
Í þættinum í dag er Auður Vala.
Auður hefur komið víða við í gegnum tíðina – meðal annars í íþróttum, ferðamálum og verkefnum þar sem metnaður og ábyrgð skipta miklu máli.
Við ræðum meðal annars:
– vinnuna sem fólk sér ekki– metnað og ábyrgð í starfi– að fara „all in“ í verkefni– rætur og tengsl við Austurland
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Þátturinn er framleiddur af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.

Friday Mar 20, 2026
#9 - Kristdór (Kristó)
Friday Mar 20, 2026
Friday Mar 20, 2026
Í þættinum í dag er gestur minn Kristó.Hann hefur lengi verið eitt þekktasta andlit Dekkjahallarinnar á Austurlandi og byggt upp starfsemi sem margir á svæðinu þekkja vel. Í samtalinu rifjar hann upp hvernig hann flutti ungur austur, hvernig reksturinn þróaðist og hvað hefur haldið honum gangandi í gegnum árin.
Við ræðum meðal annars:– upphafið í Dekkjahöllinni– flutninginn austur og fyrstu árin– bílaáhuga, dekk og mótorsport– uppbyggingu á Austurlandi og áhrif stórframkvæmda– þjónustu við kúnna og daglegt rekstrarlíf– söluna á rekstrinum og hvað tekur við
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.

Friday Mar 27, 2026
#10 - Guðjón Sigmundsson
Friday Mar 27, 2026
Friday Mar 27, 2026
Í þættinum er gestur minn Guðjón Sigmundsson úr Vaski. Hann segir frá bernsku sinni, fyrstu starfsárunum og hvernig hann byggði upp rekstur með þjónustulund, útsjónarsemi og mikilli seiglu.
Við ræðum meðal annars:– uppvöxt og skólaár á Austurlandi – fyrstu störfin og vinnusiðferði – uppbyggingu Vasks – þjónustulund, lausnaleit og seiglu í rekstri
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.

Friday Apr 03, 2026
#11 - Gréta "bókakaffi" Sigurjónsdóttir
Friday Apr 03, 2026
Friday Apr 03, 2026
Í þættinum í dag er gestur minn Gréta Jóna Sigurjónsdóttir.Hún er tónlistarkona, kennari og frumkvöðull sem hefur markað sín spor bæði í menningarlífi Austurlands og í daglegu samfélagi. Í samtalinu rifjum við upp tónlistina, Dúkkulísur, áföll, kennslu og hvernig hugmynd verður að stað sem fólk tengir við hlýju og nærveru.
Við ræðum meðal annars:– fyrstu skrefin í tónlist– Dúkkulísur og hljómsveitalífið– áföll og að halda áfram– Bókakaffi og mikilvægi samkomustaða
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

Friday Apr 10, 2026
#12 - Alda Ósk Harðardóttir
Friday Apr 10, 2026
Friday Apr 10, 2026
Í þættinum í dag er gestur minn Alda Ósk.Hún er eigandi Snyrtistofu Öldu á Egilsstöðum, en umfram allt manneskja sem hefur byggt upp sitt eigið starf í nánu sambandi við fólk og staðinn sem hún kallar heim. Í þessu samtali ræðum við leiðina inn í snyrtifræðina, hvað það þýðir að fara ung í rekstur og hvernig þjónustustarf verður oft miklu mannlegra en fólk sér utan frá.
Við ræðum meðal annars:– uppvöxt á Egilsstöðum og tengslin við Austurland– ljósaperu-augnablikið sem leiddi hana í snyrtifræðina– stofnun Snyrtistofu Öldu árið 2007– rekstur í gegnum góðæri, hrun og COVID– mannleg tengsl í þjónustustarfi– samfélagsþátttöku og framtíðarsýn fyrir Egilsstaði
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

Friday Apr 17, 2026
#13 - Unnar Erlingsson
Friday Apr 17, 2026
Friday Apr 17, 2026
Í þættinum í dag er gestur minn Unnar Erlingsson.Unnar er grafískur hönnuður sem flutti austur með fjölskyldunni og byggði þar upp líf, tengsl og ný verkefni. Í samtalinu rifjum við upp fyrstu árin fyrir austan, hvernig hann fann sig í nýju samfélagi og hvernig lífið breyttist þegar veikindi komu inn á heimilið.
Við ræðum meðal annars:– flutninginn austur og fyrstu árin– lífið sem grafískur hönnuður fyrir austan– trú, samfélag og tengsl– veikindi á heimili og hvernig þau breyttu öllu
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

Friday Apr 24, 2026
#14 - Hildur Þórisdóttir
Friday Apr 24, 2026
Friday Apr 24, 2026
Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Þórisdóttir.Hildur er Seyðfirðingur að eigin vali, fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og manneskja sem hefur varið stórum hluta síðustu ára í að vinna fyrir samfélagið sitt.
Við ræðum meðal annars:– hvernig Seyðisfjörður tók á móti henni sem unglingi– miðbæinn, regnbogagötuna og gróskuna í litlu samfélagi– fæðingu í ófærð og hvað hún segir okkur um samgöngur og öryggi– tólf ár í sveitarstjórn, ástríðu, álag og ábyrgð
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

Friday May 01, 2026
#15 - Björt Sigfinnsdóttir
Friday May 01, 2026
Friday May 01, 2026
Í þættinum í dag er Björt Sigfinnsdóttir.
Björt er listakona, tónlistarkona og ein þeirra sem hafa mótað menningarlífið á Seyðisfirði með djúpum og varanlegum hætti. Hún kom að uppbyggingu LungA, bæði hátíðarinnar og síðar LungA skólans, og hefur í gegnum tíðina unnið með tónlist, list, verkefnastjórnun og samfélag á mörgum sviðum.
Í samtalinu ræðum við fyrstu skrefin í tónlistinni, hvernig LungA varð til, hvernig það er að byggja upp alþjóðlegt menningarverkefni í litlum bæ og hversu miklu máli fólkið í kringum verkin skiptir.
Við förum líka inn á öryggi, ábyrgð, samvinnu, menntun, tilfinninguna að finna sitt fólk — og hvernig list getur breytt stemningunni í heilu bæjarfélagi.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.





