Mjólkurhúsið
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Podcast Description
Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka.
Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.
Episodes

May 8, 2026
#16 - Skúli Björn Gunnarsson
May 8, 2026
May 8, 2026
59 min
Í þættinum í dag er gestur minn Skúli Björn Gunnarsson. Skúli var forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í 25 ár og hefur átt stóran þátt í að móta staðinn sem menningar-, fræða- og ferðamannastað á Austurlandi. Í samtalinu förum við yfir upphafið, söguna í húsinu, fólkið í kringum verkefnið og hvað það þýðir að kveðja starf sem hefur verið svo stór hluti af lífinu.
Við ræðum meðal annars:– hvernig Skriðuklaustur var byggt upp sem menningarstaður– arfleifð Gunnars Gunnarssonar og hlutverk Gunnarsstofnunar– fornleifauppgröftinn og miðaldaklaustrið– ferðaþjónustu, heimamenn og menningu á Austurlandi
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

May 15, 2026
#17 - Garðar Valur
May 15, 2026
May 15, 2026
1hr 10 min
Í þættinum í dag er gestur minn Garðar Valur. Garðar er hluti af Austurnet á Egilsstöðum og hefur komið að fjölmörgum hugbúnaðar- og frumkvöðlaverkefnum sem hafa orðið til hér fyrir austan. Í samtalinu förum við yfir leiðina úr bankanum, í nám, í óvissuna og áfram inn í verkefni sem urðu stærri en kannski var séð fyrir í upphafi.
Við ræðum meðal annars: – tímann í Landsbankanum fyrir hrun og ákvörðunina að fara í tölvunarfræði – upphaf Austurnets og fólkið í kringum fyrstu frumkvöðlaverkefnin – Orlofsvefinn, AFL, Total og hvernig kerfi verða til í raunverulegu samstarfi – kúluverkefni, Hlunnindi.is og hugmyndir sem fá að lifa áfram – hvernig það er að reka hugbúnaðarfyrirtæki á Egilsstöðum
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

May 22, 2026
#18 - Björgvin "Bubbi" Elísson
May 22, 2026
May 22, 2026
1hr 17 sec
Í þættinum í dag er gestur minn Björgvin Elísson, oftast kallaður Bubbi.
Bubbi hefur komið víða við í rekstri á Héraði og Austurlandi. Hann hefur rekið hellusteypu, Bón og púst, sinnt ræstingum, tekið við hárgreiðslustofu, byggt upp skiltagerð, stofnað Toppluti og rekur í dag Bara snilld í Fellabæ.
Við ræðum meðal annars:– fyrstu skrefin í rekstri og hellusteypuna– Bón og púst og hvernig þjónustan í kringum bíla þróaðist– hvernig verkefni koma stundum bara inn um dyrnar– hárgreiðslustofuna sem var „engan veginn á hans geira“– skiltagerðina, Toppluti og hugsunina um að nýta hlutina– Fellabæ, staðsetningu, verslun og rekstur dagsins í dag
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.

May 29, 2026
#19 - Dagmar Ýr Stefánsdóttir
May 29, 2026
May 29, 2026
1hr 13 min
Í þættinum í dag er gestur minn Dagmar. Hún er Jökuldalsmær sem hefur farið úr sveitinni, í heimavist, nám, fjölmiðla, Alcoa, Austurbrú og inn í sveitarstjórnarmálin — en samtalið snýst ekki um ferilskrána, heldur það sem mótar manneskjuna á leiðinni.
Við ræðum meðal annars:– uppvöxtinn á Jökuldal og frelsið í sveitinni – heimavist, sjálfstæði og samkennd milli barna – leiðina í fjölmiðlafræði, Akureyri og heim aftur austur – vinnusiðferði, rætur, samfélag og ábyrgð – Alcoa, Austurbrú og stærri myndina á Austurlandi – samvinnu sveitarfélaga og framtíð byggðar á fjórðungnum
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.





