
Í þættinum í dag er gestur minn Björgvin Elísson, oftast kallaður Bubbi.
Bubbi hefur komið víða við í rekstri á Héraði og Austurlandi. Hann hefur rekið hellusteypu, Bón og púst, sinnt ræstingum, tekið við hárgreiðslustofu, byggt upp skiltagerð, stofnað Toppluti og rekur í dag Bara snilld í Fellabæ.
Við ræðum meðal annars:
– fyrstu skrefin í rekstri og hellusteypuna
– Bón og púst og hvernig þjónustan í kringum bíla þróaðist
– hvernig verkefni koma stundum bara inn um dyrnar
– hárgreiðslustofuna sem var „engan veginn á hans geira“
– skiltagerðina, Toppluti og hugsunina um að nýta hlutina
– Fellabæ, staðsetningu, verslun og rekstur dagsins í dag
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Version: 20241125
No comments yet. Be the first to say something!