
Í þættinum í dag er gestur minn Garðar Valur.
Garðar er hluti af Austurnet á Egilsstöðum og hefur komið að fjölmörgum hugbúnaðar- og frumkvöðlaverkefnum sem hafa orðið til hér fyrir austan. Í samtalinu förum við yfir leiðina úr bankanum, í nám, í óvissuna og áfram inn í verkefni sem urðu stærri en kannski var séð fyrir í upphafi.
Við ræðum meðal annars:
– tímann í Landsbankanum fyrir hrun og ákvörðunina að fara í tölvunarfræði
– upphaf Austurnets og fólkið í kringum fyrstu frumkvöðlaverkefnin
– Orlofsvefinn, AFL, Total og hvernig kerfi verða til í raunverulegu samstarfi
– kúluverkefni, Hlunnindi.is og hugmyndir sem fá að lifa áfram
– hvernig það er að reka hugbúnaðarfyrirtæki á Egilsstöðum
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
No comments yet. Be the first to say something!