
Í þættinum í dag er gestur minn Kristó.
Hann hefur lengi verið eitt þekktasta andlit Dekkjahallarinnar á Austurlandi og byggt upp starfsemi sem margir á svæðinu þekkja vel. Í samtalinu rifjar hann upp hvernig hann flutti ungur austur, hvernig reksturinn þróaðist og hvað hefur haldið honum gangandi í gegnum árin.
Við ræðum meðal annars:
– upphafið í Dekkjahöllinni
– flutninginn austur og fyrstu árin
– bílaáhuga, dekk og mótorsport
– uppbyggingu á Austurlandi og áhrif stórframkvæmda
– þjónustu við kúnna og daglegt rekstrarlíf
– söluna á rekstrinum og hvað tekur við
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Hlaðvarpið er framleitt af U701 Studio í samstarfi við Austurfrétt.
Version: 20241125
No comments yet. Be the first to say something!