
Í þætti #7 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Þorgeiri Arasyni, sem og konan hans komu fyrst austur árið 2008 og settust að á Egilsstöðum. Hann vígðist til prestsstarfa árið 2009 og hefur síðan þá starfað í samfélaginu.
Við ræðum aðflutning, sterkt samfélag og hvernig það er að ala upp börn á Egilsstöðum. Við förum inn í þjónustustarf prestsins og spyrjum: Lýkur vinnudeginum nokkurn tímann í slíku hlutverki? Eru mörkin á milli vinnu og heimilis skýr?
Við tölum einnig um fjölskyldulíf í kringum þjónustustarf, verkefnin sem starfið kallar á og þau sérverkefni sem hann sinnir um þessar mundir. Og við veltum fyrir okkur hvort og hvenær einstaklingur getur orðið ómissandi.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna.
Unnið í samstarfi við Austurfrétt. 🎧
No comments yet. Be the first to say something!