
Í þætti #6 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Elínu Káradóttur og ræðum leið sem byrjaði í Hróarstungu á Austurlandi, lá suður, slysast til Hveragerðis — og endaði í fasteignasölu sem hún síðar keypti og byggði upp.
Við tölum um samfélag og rætur, grunnskólagönguna og hvernig tilviljanir verða stundum að stefnu. Elín segir frá því hvernig hún fór að selja eignir á Austurlandi á meðan lífið var fyrir sunnan — og hvernig það endaði með því að hún flutti aftur austur þegar börnin vildu koma heim.
Nú er hún á nýjum stað í ferlinu. Á næstu misserum opnar hún Hjá Línu, fyrstu lúgusjoppuna á Egilsstöðum í langan tíma.
Þessi þáttur er lengri en vanalega, en samtalið fékk einfaldlega að taka þann tíma sem það þurfti.
Mjólkurhúsið er unnið í samstarfi við Austurfrétt.
Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. 🎧
No comments yet. Be the first to say something!